FERÐ TIL JEMEN OG JÓRDANÍU.
Vor 2007
25.mars-11.apr.
Páskaferð
FERÐATILHÖGUN
1. dagur.
Flogið frá Keflavík með FI 520 kl.07,25 til Frankfurt og lent þar kl.12,50. Kl 14,10 leggjum við af stað með jórdanska flugfélaginu Royal Jordanian. Millilendum í Amman kl. 20,20 og áfram til til Sanaa, höfuðborgar Jemens. Við lendum þar um kl. 1,40 um nóttina. Fulltrúi Universal ferðaskrifstofunnar tekur á móti okkur og gengið frá vegabréfsáritunum. Síðan rakleitt inn í borg og á Hótel Hill Town sem er prýðilegt hótel og miðsvæðis.
sími 967-1- 278426
2.dagur
Menn hvíla sig vel eftir ferðina og fá sér morgunverð og síðan tökum við öllu rólega og erum á röltinu saman.
Varla er um það deilt að Sanaa er ævaforn borg og sagt að Sem, sonur Nóa hafi stofnað hana. Honum fannst landkostir góðir og reisti sér bú við rætur Ngum fjalla og gaf staðnum nafnið Madinat Sem- Semborg- Ásamt Damaskus í Sýrlandi er Sanaa efalítið með elstu borgum sem enn eru í byggð á sínum forna stað. Hún stendur uppi á hásléttu og enn hærri fjöll blasa við í allar áttir. Jemen var aldrei hertekið að fullu af Tyrkjum á tímum Ottomanveldisins og ættbálkakúltúr er sterkari þar en í öðrum Arabalöndum. Margir telja að arabísk þjóðarhyggja hafi orðið til í Sanaa. Þennan dag skoðum við borgarmúrana um gömlu borgina sem eru undir verndarvæng UNESCO og hafa verið gerðir upp og tekist vel til, kíkjum á markaðinn og mætti hugsa sér að líta inn á Nýlistasafnið í gömlu borginni. Virðum fyrir okkur þessi einstöku hús og dást má að því hvað UNESCO hefur tekist vel að gera upp múrana umhverfis gömlu borgina. Haft er fyrir satt að þeir hafi upprunalega verið reistir af Túransja sem var bróðir Saladins sigursæla sem vann Jerúsalem úr höndum krossfaranna.
Kvöldverður á líbönsku veitingahúsi, Al Fanús og gisting á Hill Town.
3.dagur
Morgunverður. Síðan leggum við af stað frá Sanaa til Taiz í miðhluta Jemen og farið um Zafar, Ibb og Jibla og verður gert stans á öllum þessum stöðum. Ibb er í fögrum og frjósömum dal og hvarvetna sjáum við þorpin nánast hanga í fjallshlíðunum. Við göngum um vel varðveittan bæinn sem gefur hugmynd um mikla og merka fortíðarsögu. Bærinn Jibla var höfuðborg Jemens áður og fyrr og dýrð Jibla var mest á valdadögum þegar þarna ríkti drottningin Arwa Akmedsdóttir rúmlega þúsund eftir Krist. Drottningin lét byggja hinar fegurstu hallir og moskur hringlaga um borgina. Jibla er í gróðursælu umhverfi enda nýtur Jemen þeirra forréttinda eitt landa Arabíuskagans að frátöldu Líbanon þar sem gnægð er vatns.
Þegar við komum til Taiz tjekkum við inn á Taj Shamsan hóteli. Þar borðum við kvöldverð.
sími: 967-4-236514
imeil: tajshamsan@y.net.ye
4.dagur
Morgunverður
Við förum í ökuferð upp á tind Saberfjalls og sjáum hvarvetna lítil þorp og litrík á leiðinni. Við horfum yfir fagurt stallalandslag þar sem hver blettur er ræktaður. Síðdegis skoðum við okkur um í Taiz sem er falleg borg í miðhluta landsins. Hún var höfuðborg á Rashulidstímabilinu. Þar eru merkar moskur og ýmsar byggingar og við skoðum safn sem áður var heimili síðasta imamsins og kynnumst furðulegum lífsstíl þess skringilega nautnaseggs.
Löbbum um markaðinn og síðan aftur heim á Taj Shamsan hótel og gistum þar
5.dagur.
Morgunverður
Síðan er lagt af stað frá Taiz og stefnan tekin á Hodeidah en við tökum á okkur krók til Khoka við Rauða hafið og bregðum okkur þar í bátsferð og svömlum í Rauða hafinu ef við viljum. Síðan höldum við áfram um fallega leið og komum meðal annars við í Zabid sem var mikilvægt islamskt fræðasetur áður fyrr og sagt er að þar hafi menn fundið upp algebru. Húsin eru mörg hundruð ára gömul, fagurlega skreytt og skorin og þar stendur moska frá 10.öld. til hafnarbæjarins Hodeidah. Gistum þar á Taj Awsan hóteli.
Sími 967-3-235270
6.dagur.
Morgunverður
Við byrjum á að fara á fiskmarkaðinn og keyrum um í Hodeidah en síðan stefnan stungin út til Sanaa. Þá förum við um það svæði þar sem kaffiplantekrur eru hvað mestar og við gerum stans í fjallabænum Manakha sem er hrikalegur í landslagi og markaður bæjarins sveigist eftir þröngum götum. Við förum til Al Hajjarah sem er víggirtur ævagamall bær og þar horfum við á innfædda sýna hina hefðbundnu Bara’a dansa. Við komuna til Sanaa höldum við á Hill Town hótelið. Borðum á fiskistað inni í borg
7.dagur
Morgunverður.
Síðan er haldið til flugvallarins og fljúgum til Múkalla í suðaustri. Þaðan liggur svo leiðin yfir merkur og sanda og niður í dalina til Sejun og gistum og borðum á fallegu hóteli sem heitir Al Howta Palace.
Sími 967 5 425010
8.dagur.
Morgunverður. Gott að fá sér sundsprett í lauginni við hótelið. Erum í Sejun þennan dag. Skoðum nágrannabyggðir, en Sejun er í Wadi Hawdramat sem er víðastur dala í Jemen. Við skoðum líka stórar og fagrar hallir og miklar moskur og alls staðar er litskrúðugt mannlíf. Síðdegis til Sjibam, en sá bær er einstakur og er oft kallaður Manhattan eyðimerkurinnar. Við borgum kvöldverð og gistum á Al Howta Palace.
9.dagur
Morgunverður. Nú liggur leiðin upp til Marib um Safer. Þar er merkastur fornminjastaður landsins einkum vegna Sabaveldisins sem stóð um alder. Sagt er að þar séu menjar um höllu Bilquis, drottningarinnar af Saba en ekki víst að þar sé nákvæmlega með farið. Merkilegar stíflur voru reistar þarna og vatn notað til áveitu öldum saman. Gamla Marib blasir við eins og ævintýraborg. Þarna eru einnig Sólar og tunglhofin. Við borðum kvöldverð og gistum á Hótel Bilquis
Sími 967 6302372
10.dagur
Morgunverður
Keyrum svo aftur til Sana. Gistum á Hill Town og borðum utan hótelsins
11. dagur
Morgunverður
Skoðunarferð til Thula, Sjibam og Kawkaban. Thula er víggirt borg norður af Sanaa og múrarnir eru upprunalegir og einstakt sýnishorn af því hvernig Arabar hafa notað steina í byggingar sínar. Áfram til Hababah sem er notaleg og dæmigerð “steinaborg” áður en við keyrum um eldfjallalandslag til Sjibam við rætur Kawkaban fjalls. Þetta eru eins konar tvíburabæir og Kawkaban stendur efst á fjallstindi en Sjibam var höfuðborg í Jafforidaveldinu fyrir þúsund árum. Hefð er fyrir því að menn gangi eftir stíg upp fjallið um 300 metra en flestir kjósa væntanlega að fara akandi. Frá Kawkaban er mikilfenglegt útsýni yfir nágrannasveitir og dæmigerður margra fjallabæja Um kvöldið er snætt góðu veitingahúsi og gist á Hill Town.
12.dagur.
Morgunverður
Frjáls dagur í Sanaa. Ef til vill keyrum við síðdegis út til Wadi Dhar þar sem höll síðasta imamsins stendur upp á ofurháum kletti. Um kvöldið borðum við kveðjukvöldverð á dæmigerðu jemensku veitingahúsi og gistum á hótel Hill Town.
13.dagur
Morgunverður
Fyrri hluta dags geta menn lokið við innkaup og skoðun og um tvö leytið farið til flugvallarins og flugvélin leggur af stað til Amman í Jórdaníu kl. 16.25. Við lendum þar tveimur og hálfum tíma síðar.
Þar er tekið á móti okkur af fulltrúa Discoveryferðaskrifstofunnar sem sér um Jórdaníulegginn. Við ökum í suðurátt til Petra, tjekkum inn á Petra Palace sem er prýðilegt 3ja stjörnu hótel og borðum síðbúinn kvöldverð og gistum þar.
Sími: 962-3- 215 6723
email: ppwnwm@go.com.jo
14. dagur
Við verðum fram eftir deginum í Petru og skoðum þessa ógleymanlegu rósrauðu borg “ jafngömul tímanum” eins og einn ferðalangur lýsti henni. Háir hamraveggirnir hylja hana enda var hún týnd um aldir þótt rekja megi sögu hennar til Nabatea en hún var höfuðborg þeirra. Þetta er hreinasti ævintýraheimur. Dalurinn myndaðist við náttúruhamfarir fyrir milljónum ára og þá þeyttust roðalitaðar klettaslettur hátt í loft upp og mynduðu umgerð hennar.
Síðdegis geta menn skvampað í sundlaug hótelsins, farið í tyrkneskt bað eða gert hvað sem þá fýsir.
Borðað og gist á Petra Palace.
15.dagur.
Morgunverður. Síðan er keyrt niður til Wadi Rum í heimsókn til bedúína og til að skoða þetta sérstæða tungllandslag sem er einstaklega dulúðugur og harla magnaður staður. Eftir skoðunarferðina borðum við hjá bedúínum.
Þarna gistum við í tjöldum inni í Wadi Rum og njótum kyrrðar og stjörnufegurðar
16.dagur
Morgunverður
Leggjum snemma af og ökum fallega leið niður að Dauða hafi sem er lægsti staður á jörðinni. Á leiðinni komum við í helli Lots sáluga og dætra hans þar sem þau höfðust við eftir flóttann frá Sódóma.
Dauða hafið er svo salt að ekkert kvikindi þrífst þar og er hið mesta grín að busla í því. Við gistum á Marriott hótelinu sem stendur við hafið og er fagur staður. Borðum háadegisverð á Marriott og síðan notum við daginn til að vera við hafið eða í öðrum lúxus hótelsins. Síðdegis keyrum við til Amman og borðum og gistum á hótel Liwan eða Amman West. Bæði eru þessi hótel hin þekkilegustu.
17.dagur
Morgunverður
Síðan er keyrt frá Amman og upp á Nebofjallið þar sem Móses horfði yfir til fyrirheitna landsins og þar er einnig talið að hann hafi verið jarðsettur. Förum til Madaba og skoðum okkur þar um á nokkrum stöðum á leiðinni.
Síðdegis er frjáls tími. Borðað og list á hótelinu þar.
18.dagur
Morgunverður
Til flugvallar klukkan 9 og heimleiðis höldum við með Royal Jordanian eða upp úr ellefu f.h.
Við lendum í London kl. 14.45 að staðartíma og síðan er bið í London til kl. 21.10 að við fljúgum heim með Flugleiðum og komum heim kl.23,10.
Þetta verður spennandi ferð sem ég hygg að allir muni njóta vel með forvitni og jákvæðan hug að leiðarljósi.
Ferðin kostar 260 þúsund krónur (miðað við 20 þátttakendur)
Innifalið:
Flug, skattar
Gisting, morgunverður og kvöldverður(nema síðasta kvöldið í Jórdaníu)
Allar skoðunarferðir sem upp eru taldar í áætlun
Aðgangseyrir á alla staðina
Flug innan Jemens
Íslensk fararstjórn
Vatn/te í ferðum í Jemen
Bátsferð á Rauða hafinu (Jemen)
Ferð í hestvagni inn í Petra(mínus tips til hestastrákanna)
Tips til burðarmanna á flugvöllum, hótelum og veitingastöðum
Ekki innifalið:
Drykkir, áfengir sem óáfengir
Tips til jemensku og jórdönsku fararstjóra og bílstjóra 10 dollarar á dag eða 170 dollarar. Þá upphæð innheimti ég einhvern fyrstu dagana og geri upp við þá.
Síðasti kvöldverðurinn í Jórdaníu ( um 25 dollarar)
Staðfestingargjald er 20 þús. kr. Óafturkræft.
Það greiðist 1.september.
Aðrar greiðslur
1.okt. 48 þús
1. nóv 48 þús
1.des. 48 þús
1. jan. 48 þús
1.febr. 48 þús.
Greiðsla fyrir eins manns herbergi er 400 dollarar. Greiðist inn á reikninginn með síðustu greiðslunni 1.febr.
Greiðist á 1151 15 550908 kt. 1402403979
Skal tekið fram að menn sjái sjálfir um tryggingar. Ég sendi hverjum og einum kvittun eftir hverja innborgun svo menn geta safnað á þann hátt gildri forfallatryggingu.
Upplýsingar á jemen@simnet.is
og í símum 55 14017 og 897 6117
Jóhanna Kristjónsdóttir