FERÐ TIL JEMEN OG JÓRDANÍU.
Vorið 2005
ÞAR SEM FJÖLDI ÞÁTTTAKENDA VERÐUR TAKMARKAÐUR VERÐUR AÐ TILKYNNA SIG FYRIR NÓVEMBERLOK .
ATHUGIÐ AÐ Í JEMEN ER 'AFENGI EKKI AÐ HAFA EN ÚTLENDINGAR MEGA KOMA MEÐ TVÆR FLÖSKUR AF STERKU V'INI HVER INN 'I LANDIÐ
Sendið mér endilega póst ef þið viljið slást í hópinn
Öll hótel eru mjög notaleg og sum beinlínis meira en það.
Munið að hafa allan vara á með bólusefningar og munið að taka með ykkur lyf sem þið notið að staðaldri og geyma þau í handfarangri. Einnig að taka ljósrít af greiðslukortum og stimpluðum vegabréfssíðum. Þetta er sérstaklega áríðandi því Ísland á engan ræðismann í Jemen.
Það gildir hér sem annars staðar að EKKI má vera með ísraelskan stimpil í vegabréfinu
Allar upplýsingar um verð á þessari ferð og greiðslukjör gefur JK.Sendið póst og þið fáið svar snarlega
Innifalið í verði:
Flug, gisting (tveir í herbergi)
Morgunverður,
Allar skoðunarferðir
Vegabréfsáritanir en þarf að hafa númer og upplýsingar mánuði fyrir ferð
Kvöldverður alla dagana
Íslensk fararstjórn
Allur akstur og aðgangseyrir á skoðunarstaði í Jemen og Jórdaníu
Upplýsingamappa við komuna til Jemen og einnig í Jórdaníu
Vatn í skoðunarferðum
Bátsferð á Rauða hafinu
Flugferð milli Sanaa og Sejun í Jemen
Kveðjugjöf í Jemen
Hestaferð í Petru í Jórdaníu
Ferð inn í Wadi Rum og kvöldverður hjá bedúínum
Í Jemen er kaffi eða te ókeypis þegar stoppað er.
EKKI innifalið:
Hádegisverðir
Drykkir hvort sem er óáfengir eða áfengir drykkir
Tips til jemenska fararstjórans og bílstjórans og starfsbræðra þeirra í Jórdaníu, um 85 dollarar á farþega.
Brottfararskattur í Jórdaníu(líklega um 1000-1200 íslenskar krónur.)
Tekið skal fram að í Sanaa verður ekki borðaður kvöldverður á Hill Town heldur hef ég valið ýmsa góða staði með gómsætan mat á borðum. Ath að allir kvöldverðir í ferðinni eru innifaldir. Þegar við forum til Taiz, Hodeidah og Sejun er borðaður kvöldmatur á þeim hótelum sem við gistum á.
FERÐATILHÖGUN
1.dagur.
Flogið frá Keflavík með FI 520 kl.07,25 til Frankfurt og lent þar kl.12,50. Kl 15,10 leggjum við af stað með jórdanska flugfélaginu Royal Jordanian. Millilendum í Amman kl. 20,20 og áfram til til Sanaa, höfuðborgar Jemens. Við lendum þar um kl. 1,40 um nóttina. Fulltrúi Universal ferðaskrifstofunnar tekur á móti okkur og gengið frá vegabréfsáritunum. Síðan rakleitt inn í borg og á Hótel Hilltown sem er prýðilegt hótel og miðsvæðis.
2.dagur
Menn hvíla sig vel eftir ferðina og fá sér morgunverð og síðan tökum við öllu rólega og erum á röltinu saman.
Varla er um það deilt að Sanaa er ævaforn borg og sagt að Sem, sonur Nóa hafi stofnað hana. Honum fannst landkostir góðir og reisti sér bú við rætur Ngum fjalla og gaf staðnum nafnið Madinat Sem- Semborg- Ásamt Damaskus í Sýrlandi er Sanaa efalítið með elstu borgum sem enn eru í byggð á sínum forna stað. Hún stendur uppi á hásléttu og enn hærri fjöll blasa við í allar áttir. Jemen var aldrei hertekið að fullu af Tyrkjum á tímum Ottomanveldisins og ættbálkakúltúr er sterkari þar en í öðrum Arabalöndum. Margir telja að arabísk þjóðarhyggja hafi orðið til í Sanaa. Þennan dag skoðum við borgarmúrana um gömlu borgina sem eru undir verndarvæng UNESCO og hafa verið gerðir upp og tekist vel til, kíkjum á markaðinn og mætti hugsa sér að líta inn á Nýlistasafnið í gömlu borginni.
Seinni hluta dagsins skreppum við í stutta skoðunarferð út til Wadi Dhar. Það er um korters keyrsla. Þar stendur höll síðasta imamsins í Jemen uppi á ofurháum kletti og hefur verið gert að safni. Útsýni yfir nágrannasveitirnar og gaman að skoða höllina sem er eitt af einkennismerkjum Jemens.
Kvöldverður og gisting á Hótel Hilltown.
3.dagur
Morgunverður. Síðan hefst skoðunarferð hópsins saman um borgina. Við förum að hliðunum fjórum og hið síðasta Bab al Jemen sem er aðalhliðið var byggt af Ottómönum og goðsögnin hefur það fyrir satt að múrarnir hafi verið reistir af Túransja sem var bróðir Saladíns hins sigursæla sem vann Jerúsalem úr höndum krossfaranna og kom víða við í þessum heimshluta. Við göngum um gömlu borgina frá Bab al Jemen og skoðum Saltmarkaðinn sem er ævaforn og líflegur í meira lagi og skrautlegt mannlíf blasir við. Eftir að hafa kannað saltmarkaðinn væri ráð að fara á þjóðminjasafnið þar sem áður var höll Jahya imams og skoðum síðan gamla gyðingahverfið í Sanaa. Gyðingar bjuggu margir í Jemen fyrir stofnun Ísraelsríkis og enn er gyðingasamfélag í landinu, einkum í borginni Saada í norðurhlutanum.
Við keyrum til Saila þar sem forn árfarvegur skiptir borginni og síðan göngum við um þar í grenndinni.
Jemenskar borgir og þó umfram allt Sanaa eru einstaklega myndrænar og allt er byggt úr grófum múrsteini, gluggar litlir og einatt skreyttir litríku gleri. Gamli borgarhluti Sanaa er nú undir vernd UNESCO sem hefur látið endurnýja og endurgera merkar byggingar svo og borgarmúrana umhverfis hana.
Þennan dag skoðum við gömlu borgina með sín sérstæðu hús með skreytingum og byggingarlagi mætti kannski nefna piparkökuhús.
4.dagur
Morgunverður
Lagt af stað um kl 9 Taiz um Zafar, Ibb og Jibla og verður gert stans á öllum þessum stöðum. Ibb er í fögrum og frjósömum dal og hvarvetna sjáum við þorpin nánast hanga í fjallshlíðunum. Við göngum um vel varðveittan bæinn sem gefur hugmynd um mikla og merka fortíðarsögu. Bærinn Jibla var höfuðborg Jemens áður og fyrr og dýrð Jibla var mest á valdadögum þegar þarna ríkti drottningin Arwa Akmedsdóttir rúmlega þúsund eftir Krist. Drottningin lét byggja hinar fegurstu hallir og moskur hringlaga um borgina. Jibla er í gróðursælu umhverfi enda nýtur Jemen þeirra forréttinda eitt landa Arabíuskagans að frátöldu Líbanon þar sem gnægð er vatns.
Þegar við komum til Taiz tjekkum við inn á Taj Shamsan hóteli.
5.dagur
Morgunverður
Við forum í ökuferð upp á tind Saberfjalls og sjáum hvarvetna lítil þorp og litrík á leiðinni. Við horfum yfir fagurt stallalandslag þar sem hver blettur er ræktaður. Síðdegis skoðum við okkur um í Taiz sem er falleg borg í miðhluta landsins. Hún var höfuðborg á Rashulidstímabilinu. Þar eru merkar moskur og ýmsar byggingar og við skoðum safn sem áður var heimili síðasta imamsins og kynnumst furðulegum lífsstíl þess skringilega nautnaseggs.
Löbbum um markaðinn og síðan aftur heim á Taj Shamsan hótel og gistum þar
6.dagur.
Morgunverður
Síðan er lagt af stað frá Taiz og stefnan tekin á Hodeidah en við tökum á okkur krók til Khoka við Rauða hafið og bregðum okkur þar í bátsferð. Síðan höldum við áfram um fallega leið og komum meðal annars við í Zabid sem var mikilvægt islamskt fræðasetur áður fyrr og sagt er að þar hafi menn fundið upp algebru. Húsin eru mörg hundruð ára gömul, fagurlega skreytt og skorin og þar stendur moska frá 10.öld. til hafnarbæjarins Hodeidah. Gistum þar á Ambassador hóteli.
7.dagur.
Morgunverður
Við byrjum á að fara á fiskmarkaðinn og keyrum um í Hodeidah en síðan stefnan stungin út til Sanaa. Þá forum við um það svæði þar sem kaffiplantekrur eru hvað mestar og við gerum stans í fjallabænum Manakha sem er hrikalegur í landslagi og markaður bæjarins sveigist eftir þröngum götum. Við förum til Al Hajjarah sem er víggirtur ævagamall bær og þar horfum við á innfædda sýna hina hefðbundnu Bara’a dansa. Við komuna til Sanaa höldum við á Hilltown hótelið.
8.dagur
Morgunverður.
Árla morguns forum við í dagsskoðunarferð til Marib í austri. Þar er merkastur fornminjastaður landsins einkum vegna Sabaveldisins sem stóð um alder. Sagt er að þar séu menjar um höllu drottningarinnar af Saba en ekki víst að þar sé nákvæmlega með farið. Merkilegar stíflur voru reistar þarna og vatn notað til áveitu öldum saman. Gamla Marib blasir við eins og ævintýraborg. Við keyrum svo aftur til Sanaa síðdegis og gistum á Hill Town.
9.dagur.
Morgunverður
Um morguninn förum við snemma til flugvallarins og fljúgum með Yemenia til Sejun sem er stærsti bærinn í Wadi Hawdramat í suðausturhlutanum. Við komuna er haldið á Hótel Howta Palace og tjekkað inn. Menn blása mæðinni og síðan er skoðunarferð um bæinn sem var áður var höfuðborg Kaþirisoldánríkis. Síðdegis skoðum við Sjibam, Manhattan eyðimerkurinnar sem er einstakur staður og er nú undir verndarvæng UNESCO. Tilkomumikill staður og hrífandi að sjá hann við sólsetur.
Borðum og gistum á Howta Palace
10.dagur
Morgunverður
Við keyrum til Tarim sem var höfuðborg Kindakónga og farið í söfn og moskur og tyllt sér niður í te og mannlífsskoðun annað veifið. Síðdegis fljúgum við svo til Sanaa.
Gistum á Hill Town
11. dagur
Morgunverður
Síðan hefst skoðunarferð til Thula, Hababah, Sjibam og Kawkaban. Thula er víggirt borg norður af Sanaa og múrarnir eru upprunalegir og einstakt sýnishorn af því hvernig Arabar hafa notað steina í byggingar sínar. Áfram til Hababah sem er notaleg og dæmigerð “steinaborg” áður en við keyrum um eldfjallalandslag til Sjibam við rætur Kawkaban fjalls. Þetta eru eins konar tvíburabæir og Kawkaban stendur efst á fjallstindi en Sjibam var höfuðborg í Jafforidaveldinu fyrir þúsund árum. Hefð er fyrir því að menn gangi eftir stíg upupfjallið um 300 metra en flestir kjósa væntanlega að fara akandi. Frá Kawkaban er mikilfenglegt útsýni yfir nágrannasveitir og dæmigerður margra fjallabæja Um kvöldið er snætt á hótel Hilltown og gist þar.
12.dagur.
Morgunverður
Frjáls dagur í Sanaa. Um kvöldið borðum við kveðjukvöldverð á dæmigerðu jemensku veitingahúsi og gistum á hotel Hilltown.
Um að gera að ganga snemma til náða því ferð út á völl er kl. 4 um nóttina.
13.dagur
Eftir þriggja tíma flug lendum við í Amman og þar er tekið á móti okkur af fulltrúa ferðaskrifstofunnar sem sér um Jórdaníulegginn. Við ökum í suðurátt til Petra, tjekkum inn á Petra Palace sem er prýðilegt 3ja stjörnu hótel. Vegna þess hvað við erum komin til Petru á skikkanlegum tíma getum við skoðað borgina síðdegis og í ljósaskiptunum sem er mögnuð sjón. Við borðum kvöldverð á Petra Palace og gistum af nóttina.
14.dagur
Morgunverður
Við verðum fram eftir deginum í Petru og skoðum þessa ógleymanlegu rósrauðu borg “ jafngömul tímanum” eins og einn ferðalangur lýsti henni. Háir hamraveggirnir hylja hana enda var hún týnd um aldir þótt rekja megi sögu hennar til Nabatea en hún var höfuðborg þeirra. Þetta er hreinasti ævintýraheimur. Dalurinn myndaðist við náttúruhamfarir fyrir milljónum ára og þá þeyttust roðalitaðar klettaslettur hátt í loft upp og mynduðu umgerð hennar.
Síðdegis liggur leiðin til hafnar og ferðamannastaðarins Aqaba og tjekkum inn á Golden Tulip sem er fjögurra stjörnu hótel og borðum kvöldmat þar.
15.dagur.
Morgunverður. Frjáls dagur. Menn geta farið í bátsferðir, stundað köfun eða sleikt sólina. Gist á Golden Tulip
Síðdegis er gefinn kostur á spennandi ferð inn í Wadi Room í heimsókn til bedúína og til að skoða þetta sérstæða tungllandslag.
16.dagur
Morgunverður
Leggjum snemma af og ökum fallega leið niður að Dauða hafi sem er lægsti staður á jörðinni. Þar er vatnið svo salt að ekkert kvikindi þrífst þar og er hið mesta grín að busla í því. Við gistum á Marriott hótelinu sem stendur við hafið og er fagur staður. Borðum og gistum þar.
17.dagur
Morgunverður
Kl. 8 er keyrt til Ammans um Nebofjallið þar sem Móses horfði yfir til fyrirheitna landsins og þar er einnig talið að hann hafi verið jarðsettur. Á þessum slóðum er hellir Lots og tveggja dætra hans sem þau bjuggu eftir að hafa sloppið frá Sódóma. Við skoðum okkur þar um en þegar til Amman er komið er tjekkað inn á hotel Liwan, ljómandi hótel á góðum stað.
Síðdegis er skoðunarferð um helstu staði í Amman og síðan frjáls tími. Við borðum saman um kvöldið á Liwanog búum okkur undir að kveðja Jórdaníu.
18.dagur.
Morgunverður
Til flugvallar klukkan 9 og heimleiðis höldum við með Royal Jordanian eða upp úr ellefu f.h.
Við lendum í London kl. 14.45 að staðartíma og síðan er bið í London til kl. 21.10 að við fljúgum heim með FI 453 og komum heim kl.23,10.
Þetta verður spennandi ferð sem ég hygg að allir muni njóta vel með forvitni og jákvæðan hug að leiðarljósi.
Jóhanna Kristjónsdóttir